Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020

Trump brýtur aldargamla hefð og fyrirskipar fimm aftökur
Nú þegar styttist í að Donald Trump forseti Bandaríkjanna yfirgefi Hvíta húsið hefur stjórn hans fyrirskipað aftökur á fimm mönnum sem á að taka af lífi áður en Joe Biden tekur við stjórnartaumunum þann 20. janúar á næsta ári.

Skattamál Hunters Biden til rannsóknar
Saksóknari í Delaware fer nú fyrir rannsókn á skattamálum Hunters Biden, sonar Joe Biden verðandi Bandaríkjaforseta. Sjálfur segist Hunter Biden líta rannsóknina „mjög alvarlegum“ augum en kveðst fullviss um að „hlutlaus úttekt“ muni leiða í ljós að hann hafi staðið skil á sköttum og gjöldum „samkvæmt lögum og með viðeigandi hætti,“ að því er fram kemur í frétt BBC nú í kvöld.

Þingmenn sjá ekki hag í því að standa upp í hárinu á Trump
Leiðtogar Repúblikanaflokksins ætla sér ekki að viðurkenna sigur Joe Bidens í forsetakosningunum fyrr en í næsta mánuði og jafnvel ekki fyrr en eftir að hann tekur embætti.

Trump-liðar reyna að troða sem flestum málum í gegn fyrir embættistöku Bidens
Ráðgjafar Donald Trumps, forseta, og starfsmenn Hvíta hússins segja hann virðast þungan á brún og að hann hafi engan áhuga á vinnunni. Það er þrátt fyrir að faraldur nýju kórónuveirunnar hafi náð nýjum hæðum í Bandaríkjunum.

Barr ekki lengur í náðinni og sagður íhuga að hætta
William Barr, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, íhugar að hætta sem ráðherra, áður en kjörtímabild Donald Trumps, forseta, rennur út í næsta mánuði. Trump brást mjög reiður við þegar Barr sagði nýverið í viðtali að starfsmenn ráðuneytisins hefðu ekki fundið neinar sannanir fyrir þeim umfangsmiklu kosningasvikum sem forsetinn segir að hafa kostað sig sigur í kosningunum í síðasta mánuði.

Trump segir Rudy Giuliani kominn með Covid-19
Rudy Giuliani, persónulegur lögmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta og fyrrverandi borgarstjóri New York, hefur greinst með Covid-19. Frá þessu greinir Trump á Twitter.

Sagður hafa beðið ríkisstjóra Georgíu um aðstoð við að snúa úrslitunum sér í vil
Bandarískir fjölmiðlar greina frá því að Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, hafi hringt í ríkisstjóra Georgíu-ríkis, og þrýst á hann um að gera það sem hann gæti til þess að snúa niðurstöðum forsetakosningannna í ríkinu Trump í vil.

27 af 249 þingmönnum Repúblikana viðurkenna sigur Bidens
Aðeins 27 þingmenn Repúblikana viðurkenna sigur Joes Biden í forsetakosningunum í Bandaríkjunni mánuði eftir sigur hans. Biden fékk sjö milljónum fleiri atkvæði á landsvísu en Donald Trump forseti og jafnmarga kjörmenn og tryggðu Trump sigur í kosningunum árið 2016. Biden hlaut 306 kjörmenn gegn 232 kjörmönnum Trump. Washington Post greinir frá þessu.

Hló þegar hann var spurður hvort það væri mikilvægt að Trump mætti
Anthony Fauci verður meðal helstu ráðgjafa nýs Bandaríkjaforseta og mun jafnframt áfram sinna hlutverki sínu sem helsti sóttvarnasérfræðingur Bandaríkjanna. Þetta var meðal þess sem kom fram í viðtali CNN við Joe Biden og Kamölu Harris í gær.

Trump bölsótaðist út af kosningarúrslitunum í löngu ávarpi
Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseti, endurtók framandlegar og stoðlausar ásakanir um stórfelld kosningasvik í forsetakosningum síðasta mánaðar í furðulegu þriggja stundarfjórðunga löngu ávarpi sem hann birti á samfélagsmiðlum í gærkvöldi.

Sjáumst eftir fjögur ár!
Donald Trump Bandaríkjaforseti gaf þeim fregnum byr undir báða vængi í gær að hann hefði mögulega hug á því að bjóða sig aftur fram til forseta árið 2024.

Hótunum rignir yfir embættismenn í Georgíu: „Þetta hefur allt gengið of langt“
Gabriel Sterling, embættismaður sem kemur að framkvæmd kosninga í Georgíu, vandaði Donald Trump, forseta, og öðrum háttsettum Repúblikönum ekki kveðjurnar á blaðamannafundi í gærkvöldi.

Barr kannast ekki við svindl og Giuliani ekki við náðunarspjall
William Barr, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, segir engar vísbendingar liggja fyrir um að stórfelld kosningasvik hefðu átt sér stað í nýafstöðnum forsetakosningum. „Hingað til höfum við ekki séð svindl af þeirri stærðargráðu að það hefði leitt til annarra úrslita í kosningunum,“ sagði Barr í viðtali við Associated Press.

Lögmaður Trump vill Krebs dreginn út í dögun og skotinn
Stuðningsmenn Donald Trump Bandaríkjaforseta freista þess enn að fá niðurstöðum forsetakosninganna snúið. Baráttan hefur litlu skilað og reiðin magnast.

Máli Trumps í Pennsylvaínu lýst sem innihaldslausu og vísað frá
Áfrýjunardómstóll í Fíladelfíu í Bandaríkjunum hefur vísað frá máli sem lögfræðingar Donald Trumps, forseta Bandaríkjanna, höfðuðu með því markmiði að breyta úrslitum forsetakosninganna í Pennsylvaínu.

Fer úr Hvíta húsinu ef kjörmennirnir kjósa Biden
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að hann muni fara úr Hvíta húsinu ef kjörmennirnir kjósa Joe Biden, verðandi forseta, í kosningu sem fram fer þann 14. desember. Biden á að taka við embættinu 20. janúar.

Fox semur við foreldra Seth Rich
Fox News gerðu samkomulag við foreldra manns vegna fréttar um að hann hefði verið myrtur fyrir að leka tölvupóstum Demókrataflokksins til Wikileaks.

„Þetta verður ekki þriðja kjörtímabil Obama“
Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, segir að komandi kjörtímabil hans í Hvíta húsinu verði „ekki þriðja kjörtímabil Obama.“

Staðfesta sigur Bidens í Pennsylvaníu
Joe Biden fékk 3,46 milljónir atkvæða í Pennsylvaníu og Donald Trump 3,38 samkvæmt opinberum niðurstöðum úr forsetakosningunum í upphafi mánaðarins.

Tekst á við enn eina krísuna
Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, er sagður ætla að skipa Janet Yellen í embætti fjármálaráðherra. Hún hefur mikla reynslu og var til að mynda seðlabankastjóri.

Þetta gæti Biden gert í loftslagsmálum án þingsins
Líkur eru á því að hendur Joe Biden, verðandi forseta Bandaríkjanna, verði að miklu leyti bundnar hvað varðar stórtækar aðgerðir gegn loftslagsbreytingum af völdum manna á meðan repúblikanar ráða efri deild Bandaríkjaþings. Hann gæti þó beislað framkvæmdavaldið til að bregðast við vánni.

Vinna við valdaskiptin fær formlega grænt ljós
Valdaskiptaferlið í Bandaríkjunum getur nú formlega hafist eftir að forsvarsmaður GSA, alríkisstofnunar sem heldur utan um framkvæmd valdaskipta í Bandaríkjunum skrifaði undir bréf þess efnis.

Staðfesta sigur Bidens í Michigan
Kjörstjórn Michigan-ríkis í Bandaríkjunum hefur nú staðfest sigur demókratans Joes Bidens í ríkinu í forsetakosningunum sem fram fóru fyrr í þessum mánuði.

Fækkar í sérsveit lögmanna Trumps
Fækkað hefur í lögmannateymi Donald Trumps, fráfarandi forseta Bandaríkjanna, sem hefur unnið að því að berjast gegn því umfangsmikla kosningasvindli sem Trump segir hafa kostað sig sigur í forsetakosningunum.

Á að lappa upp á bandalög Bandaríkjanna
Blinken var aðstoðarutanríkisráðherra í forsetatíð Barack Obama og verður verkefni hans að stappa stálinu í hefðbundna bandamenn Bandaríkjanna og lappa upp á bandalög.

Einn helsti stuðningsmaður Trumps hvetur hann til að viðurkenna ósigur
Chris Christie, fyrrverandi ríkisstjóri í New Jersey og einn helsti stuðningsmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta í forsetatíð hans, hefur nú biðlað til Trumps um að viðurkenna ósigur í forsetakosningunum sem fram fóru í byrjun nóvember.

Biden tilkynnir ráðherraefni á þriðjudag
Joe Biden verðandi forseti Bandaríkjanna mun tilkynna fyrstu ráðherrana sem sitja munu í ríkisstjórn hans á þriðjudag. Þá hefur hann hafið undirbúning á lágstemmdri athöfn þegar hann verður settur í embætti vegna kórónuveirufaraldursins.

Telja eftirlitsmenn Trump hindra endurtalningu í Wisconsin
Yfirmenn kjörstjórnar í Wisconsin sökuðu eftirlitsmenn á vegum framboðs Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, um að reyna að hindra endurtalningu atkvæða úr forsetakosningunum þar í gær. Framboðið fór sjálft fram á endurtalninguna.

Dómsmáli vísað frá í Pennsylvaníu en Trump vill aðra endurtalningu í Georgíu
Alríkisdómari í Pennsylvaníu vísaði frá málsókn framboðs Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, vegna forsetakosninganna þar í gær.

Tilraunir Trump til að breyta úrslitum stranda á Georgíu og Michigan
Langsóttar tilraunir Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, til að snúa við úrslitum forsetakosninganna sem hann tapaði urðu fyrir enn einum áföllunum í gær.