Staðan var enn markalaus þegar flautað var til hálfleiks, en heimamenn í Degerfors tóku foyrstuna á 50. mínútu með marki frá Gustav Granath.
Emil Salomonsson jafnaði þó metin fyrir Gautaborg á 65. mínútu áður en Marcus Berg kom liðinu yfir um fimm mínútum fyrir leikslok. Berg var þá að bæta upp fyrir mistök sín, en hann hafði misnotað vítaspyrnu stuttu áður.
Eins og áður sagði lék Kolbeinn allan leikinn fyrir Gautaborg í dag, en Adam Ingi Benediktsson sat á varamannabekknum.
Eftir sigurinn er Gautaborg með 19 stig í 14. sæti eftir 20 leiki, einu stigi frá öruggu sæti þar sem Degerfors og Sirius sitja.