Fyrr í dag birtist grein á Innherja, þar sem fjallað var um rannsókn FME og greint frá því að forsvarsmenn félagsins tjáðu sig ekki um hvaða atvik rannsóknin varðaði. Birgir Jónsson forstjóri Play segir málið snúast um upplýsingagjöf, og hvort hún hefði átt að eiga sér stað nokkrum dögum fyrr.
„FME er að skoða upplýsingagjöf hjá okkur sem átti sér stað 2022, í október og nóvember. Þeir eru að velta fyrir sér hvort það hefðu myndast innherjaupplýsingar á tilteknum degi. Þetta snýst þá bara um það að þegar stjórnendur skráðra fyrirtækja vita eitthvað, hvort þeir eru nógu fljótir að senda eitthvað út á markaðinn,“ segir Birgir Jónsson, forstjóri Play, í samtali við Vísi.
Eftirlitið hafi kallað eftir gögnum um hvað var kynnt fyrir stjórn og hvernig fundargerðir frá tímabilinu líti út, svo skera megi úr um hvenær var ákveðið að fara í hlutafjárútboð.
„Þetta snýst um einhverja þrjá, fjóra daga frá því við kynntum þetta fyrir stjórn og þangað til þetta var kynnt fyrir markaðnum. Það er engin lending í þessu. Þeir eru búnir að vera að kalla eftir gögnum og við höfum sent þeim gögn, fundargerðir og hitt og þetta,“ segir Birgir.
Kunni að enda með sekt
Þar sem Play sé skráð félag hafi þurft að tilgreina í ársreikningi að mál væri í gangi hjá FME.
„Vissulega heitir löggjöfin þetta [innsk. blaðamanns: Lög um aðgerðir gegn markaðssvikum], og þá náttúrulega fara allir að velta fyrir sér hvað er í gangi. En þetta snýst bara um það, hvort við hefðum átt að segja markaðnum eitthvað sem lá fyrir í rekstrinum nokkrum dögum áður en við gerðum það, eða ekki,“ segir Birgir.
Það telji forsvarsmenn félagsins ekki hafa verið nauðsynlegt, en samtal um það standi yfir við Fjármálaeftirlitið.
Play sé, rétt eins og önnur félög á markaði, undir ströngu eftirliti FME.
„Það er alltaf verið að kalla eftir upplýsingum og spyrja hvað menn viti annað en markaðurinn. Stundum endar svona með sekt en stundum ekki með neinu. En maður þarf að greina frá því þegar svona mál standa yfir.“
„Maður á að fara eftir reglunum“
Birgir segir ekki vera grun um saknæman ásetning í málinu, né að rannsóknin snúi að ákveðnum viðskiptum.
„Þetta snýst bara um upplýsingagjöf út á markaðinn. Hvort við hefðum átt að segja eitthvað örfáum dögum áður en við gerðum það.“
Hann segir síðan eiga eftir að koma hvort FME fallist á rök félagsins í málinu.
„Ég ætla ekkert að segja að þetta sé eitthvað smámál. Maður á að fara eftir reglunum, og ef þeir ákveða að við höfum ekki farið eftir reglunum þá er það ekki gott. En við teljum okkur hafa gert það.“