
Þjóðin er mætt í ræktina
Það er heldur betur gömul saga og ný að þjóðin ætlar sér alltaf að taka sig á í byrjun árs, koma sér í ræktina og missa nokkur kíló eftir hátíðirnar.
Allt um heilsu, hreyfingu og hollan mat
Það er heldur betur gömul saga og ný að þjóðin ætlar sér alltaf að taka sig á í byrjun árs, koma sér í ræktina og missa nokkur kíló eftir hátíðirnar.
Bergsveinn Ólafsson, doktorsnemi í sálfræði og fyrrverandi knattspyrnumaður - betur þekktur sem Beggi Ólafs, segir mikilvægt fyrir fólk að vera aðlaðandi til að hámarka árangur í lífinu.
Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson var nánast búinn að gefa alla líkamsrækt upp á bátinn eftir Covid, enda með þrálátan verk í hnénu sem ágerðist jafnt og þétt. Þess í stað mætti hann til sjúkraþjálfara og í nálarstungumeðferðir til að reyna lina sársaukann, á meðan beið hann eftir að komast í hnéskiptaaðgerð.
Nýtt ár er gengið í garð og því fylgja að sjálfsögðu áramótaheit. Líkt og fyrri ár er fjöldi fólks sem strengir þess heit að sinna líkamsræktinni betur en árið á undan. Eigandi líkamsræktarstöðvar segir skemmtun lykilinn að árangri.
Sigmar Vilhjálmsson veitingamaður, formaður Atvinnufjelagsins, byrjar árið með heimakomu.
Eva Katrín Sigurðardóttir, læknir og Wim Hof kennari segist mögulega eiga Íslandsmet í endurhæfingu eftir kulnun. Eva mætti í podcast Sölva Tryggvasonar og sagði frá því þegar hún blindaðist á öðru auga vegna streitu.
Nýtt ár er handan við hornið og ný dagrenning fram undan í íþróttahreyfingunni. Grunnurinn að henni var lagður fyrr á þessu ári, sem er í mínum huga tímamótaár fyrir íþróttastarf í landinu. Árið 2023 hefur verið með þeim afkastameiri sem núverandi stjórnarfólk UMFÍ hefur tekið þátt í.
Í jógastöðu vikunnar kennir jógakennarinn Þóra Rós Guðbjartsdóttir lesendum stöðu sem heitir Sitjandi hryggvinda. Staðan er tilvalin fyrir þá sem vilja draga úr streitu í líkamanum.
Ester Hilmarsdóttir gaf á þessu ári út sína fyrstu ljóðabók og var í kjölfarið tilnefnd til Fjöruverðlaunanna í flokki fagurbókmennta. Bókin fjallar um blæðingar og er að sögn Esterar ekkert dregið undan.
Fimmtíu og fimm milljónir manna æfa á Technogym tækjum daglega víðs vegar um veröldina, hvort sem um er að ræða almenning, afreksfólk í íþróttum, fólk í endurhæfingu, eldri borgara eða börn.
Hvað var fólki efst í huga á árinu 2023? Hvar liggja átakalínurnar? Þessar raunverulegu. Hvað er umhugsunarinnar virði?
Dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir hefur boðað framhaldsnámskeið fyrir Sterkari í seinni hálfleik; Blásið í glæður nýrra drauma heitir það en námskeiðið verður haldið þann 20.janúar næstkomandi.
Einkaþjálfarinn Hreinn Orri segir líkamsrækt og mikla sjálfsvinnu hafa hjálpað sér út úr harðri fíkniefnaneyslu. Síðastliðið ár hefur hann tekist á við erfiðar tilfinningar í kjölfar sjálfsvígs föður síns, á sama tíma og hann fótar sig sjálfur í nýju hlutverki sem stjúpfaðir.
Aron Gauti Laxdal, dósent í íþróttafræði við háskólann í Agder í Noregi, hefur áhyggjur af stöðu íþróttakennslu á Íslandi. Hann segir námið ekki kenna börnum hvernig best sé að hugsa um heilsuna og njóta þess að hreyfa sig.
Anna Einarsdóttir er brosmild kona sem var svo óheppin að fá vefjagigt og hefur þjáðst af stoðkerfisverkjum í mörg ár. Þrálátir seyðingsverkir voru farnir að hafa áhrif á hreyfifærni hennar og valda orkuleysi á morgnana. Hún fékk svimaköst í tíma og ótíma út af kristöllum í eyra sem ollu ógleðistilfinningu og miklum höfuðverk.
Uppgangskynslóðin, eða „baby boomers“ kynslóðin drekkur oftast áfengi þegar fjórar kynslóðir eru bornar saman. Unga fólkið í Z-kynslóðinni staldrar stutt við á vinnustöðum.
Jógastaða vikunnar er nýr liður á Vísi en þar fer jógakennarinn Þóra Rós Guðbjartsdóttir yfir eina jógastöðu með lesendum í stuttu innslagi næstu sex vikurnar.
„Í rauninni var alltaf hjartað þar að vera vinna með og fyrir fólk. Titlarnir eru eitt en í grunninn er ég er bara fyrst og fremst mannvinur. Ég elska að pæla í fólki og vera innan um fólk. Af hverju hagar fólk sér eins og það hagar sér, af hverju líður okkur vel, af hverju líður okkur illa? Af hverju erum við kvíðin? Hvenær erum við í essinu okkar og hvernig getum við hámarkað hamingjuna?“
Nánast útilokað er að losa bandvef með sjálfsmeðferð, svo sem með notkun rúlla og bolta. Til þess að losa um samgróninga þarf töluvert stærra rennsli milli vefja og beita mun meiri kröftum.
Hinn svokallaði Heilsusveinki hefur vakið gríðarlega athygli á samfélagsmiðlinum TikTok en við skulum skyggnast inn í heim hans og kynnast hans venjum á jólunum.
Þóra Valný Yngvadóttir var 15 ára gömul þegar hún lenti ásamt fjórum öðrum í alvarlegu umferðarslysi á Sæbraut. Ungur vinur hennar lét lífið í slysinu. Atburðurinn átti eftir að hafa margvísleg áhrif á líf hennar, bæði leynt og ljóst.
Hvernig ert þú í stakk búin/n til að takast á við áföll? Hver er bakgrunnurinn þinn?
Tugir starfsmanna Reykjalundar þurftu að rýma húsnæði sitt í dag vegna myglu og lélegra loftgæða. Talið er að hluti þess sé ónýtt. Starfsfólk og sjúklingar hafa þurft frá að hverfa til skemmri og lengri tíma vegna veikinda.
Íþróttafrömuðurinn Gerður Jónsdóttir, þekkt sem Gerða-In Shape eða Jane Fonda Íslands, kenndi síðasta tímann á námskeiðinu, In Shape, í World Class í dag. Hún segist ekki geta lýst þakklæti sínu til þeirra kvenna sem hún hefur myndað dýrmæt vináttutengsl við í gegnum árin.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra mætti í strætóskýlið við Lækjartorg til að taka á móti Jólaálfi SÁÁ, sem að þessu sinni kom til byggða með strætó.
Óhætt er að segja að gleðigosinn og glamúrdrottningin Evu Ruza Miljevic komi til dyranna eins og hún er klædd sem er eflaust ástæða þess að hún er einn vinsælasti skemmtikraftur landsins. Um þessar mundir deilir Eva með fylgjendum sínum, reynslu sinni af brjóstaminnkunaraðgerð sem hún gekkst nýverið undir.
Skíðadeild útivistarbúðarinnar GG Sport opnaði í nóvember 2020 og hefur notið mikilla vinsælda síðan þá meðal skíðafólks.
Ný ríkisstjórn í Nýja-Sjálandi stefnir á að hætta við áform um að gera landið reyklaust. Er verkefnið eitt af þeim sem á að hverfa til þess að lækka skatta í landinu.
Ragnhildur Þórðardóttir, sálfræðingur og einkaþjálfari, betur þekkt sem Ragga Nagli, birti pistil á Facebook með einföldum ráðum sem geta gagnast til að fyrirbyggja streitu í daglegu lífi. Hún segir neikvætt sjálfstal, markaleysi og mataræði spila stórt hlutverk.
Líkamsmeðferðarstofan The House of Beauty að Fákafeni 9 er eftirsóttur viðkomustaður þeirra sem vilja bæta sjálfstraust, líkamlegt form og heilsu. Í tilefni af Black Friday og Cyber Monday býður stofan upp á stærstu afsláttarhelgi ársins sem hefst í kvöld.