

Neytendur
Neytendafréttir af íslenskum markaði.

Mikilvægi samkeppni
Virk samkeppni, þegar fyrirtæki keppa innbyrðis á markaði, er ekki lítilvægt orðagjálfur til að hafa uppi á tyllidögum. Hún er ein grunnstoðin í hagkerfi okkar. Jafnframt er hún ein helsta trygging neytenda fyrir úrvali og auknum gæðum, auk þess að vera vörn gegn okri og blekkingu. Það er því miður tilefni til að rifja upp mikilvægi samkeppninnar og hvað hún færir okkur.

Búið að afvopna neytendur
Formaður atvinnuveganefndar segir það ekki tortryggilegt að hann eigi hlut í félagi sem keypt var af Kaupfélagi Skagfirðinga á grundvelli nýsamþykktra búvörulaga sem tekin voru fyrir í nefndinni. Þingmaður Viðreisnar segir nefndina hafa tekið gríðarmikilvægt vopn úr höndum neytenda.

Ætlaði með allt of ungt barn í ferð og heimtaði endurgreiðslu
Ferðaþjónustufyrirtæki hefur lúffað fyrir kaupanda sem fór fram á endurgreiðslu gjalds fyrir fimm ára gamalt barn og föður þess, eftir að barninu var neitað um aðgang að ferð. Aldurstakmark í ferðina var átta ár en barnið var aðeins fimm ára.

Nova klippir kaffiverðið
Nova kynnir til leiks KaffiKlipp, nýjasta klippið í FyrirÞig fríðindaklúbbnum þar sem viðskiptavinir Nova geta fengið kaffibollann hjá Te & Kaffi á nánast hálfvirði. Með kaupum á KaffiKlippinu fást fimm kaffibollar og gildir klippið fyrir alla drykki á matseðli, þar á meðal sumardrykki.

Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda
Kaupandi pakkaferðar hjá íslenskri ferðaskrifstofu fær ferðina alla endurgreidda þrátt fyrir að hafa afbókað hana með skömmum fyrirvara. Kaupandinn lét ekki bjóða sér venjuleg sæti í flugi og Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa taldi hann mega afpanta vegna þess.

Er paprikan mín kvenkyns?
Þegar fréttir bárust af kynjuðum skuldabréfum á dögunum veltu sumir fyrir sér hvað kæmi næst. Og hvað kom næst? Jú, kynjaðar paprikur. Eða hvað?

Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst
Einhver bið er eftir því að Hagkaup hefji netsölu á áfengi. Fyrirhugað var að hægt yrði að panta áfengi og sækja hjá verslunarrisanum í síðasta mánuði. Framkvæmdastjórinn segir undirbúning á síðustu metrunum, en pappírsvinna og sumarfrí verði til þess að ekkert verði af sölunni fyrr en í ágúst.

Hundruð freista þess að gera góð kaup í Nexus
Hundruð manna hafa gert sér ferð í sérvöruverslunina Nexus í morgun þar sem blásið var til hinnar árlegu sumarútsölu verslunarinnar. Myndarleg röð var við inngang verslunarinnar í Glæsibæ þegar hún var opnuð klukkan tíu og yfir tvö hundruð manns komu í verslunina á innan við tuttugu mínútum til að gera góð kaup.

Helmingaði kostnaðinn við matarinnkaup
Fanneyju Friðriksdóttur má með réttu kalla hagsýna húsmóður eftir að hafa helmingað kostnað við matarkaup á einum mánuði. Sjónvarpsþættirnir Viltu finna milljón voru innblástur til Fanneyjar sem notaðist við snjallverslun Krónunnar til að kaupa engan óþarfa.

Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát
Ódýrasti Hlöllabáturinn kostar nú 2500 krónur og dekk í Costco hækkuðu um rúm tuttugu prósent á fjórum vikum.

Ómögulegt að vita hvað leynist í „brúnku-nefspreyjum“ sem seld eru á samfélagsmiðlum
Alvarlegum aukaverkunum hefur verið lýst í kjölfar notkunar á svokölluðum brúnku-nefspreyjum sem fullyrt er í auglýsingum að auki og viðhaldi sólbrúnku. Yfirlögfræðingur hjá Neytendastofu segir skýrt í lögum að auglýsingar megi ekki vera villandi gagnvart neytendum.

Gamla fólkið þarf að greiða fyrir sundferðina
Samkvæmt tillögu menningar,- íþrótta- og tómstundaráðs, sem samþykkt var í morgun og tekin verður fyrir í borgarráði, munu sundgestir sem náð hafa 67 ára aldri greiða stakt gjald fullorðinna og gjaldflokkurinn „eldri borgarar“ verður tekinn úr gjaldskránni. Stakt gjald fullorðinna í sundlaugar Reykjavíkurborgar er 1.330 krónur. Breytingin tekur gildi frá og með 1. ágúst.

Hækka fargjöld í strætó
Ný gjaldskrá tekur gildi hjá Strætó þann fyrsta júlí næstkomandi og nemur hækkunin á stökum fargjöldum 3,2 prósentum og á tímabilskortum 3,85 prósentum. Verð á Klapp plastkortum helst þó óbreytt eða þúsund krónur.

Ómar fær fyrir ferðina
Neytendastofa segir Esju Legal, félag Ómars R. Valdimarssonar lögmanns, hafa verið með villandi og ranga upplýsingagjöf á vef sínum Flugbaetur.is þar sem ferðalöngum er boðið upp á aðstoð við innheimtu skaðabóta.

Verðskrá Lufthansa hækkar vegna nýs umhverfisgjalds
Þýska flugsamsteypan Lufthansa, eitt stærsta flugfélag heims, hefur ákveðið að leggja sérstakt umhverfisgjald á selda flugmiða félagsins innan Evrópu. Þetta er gert til að mæta auknum kostnaði sem kemur til vegna umhverfismarkmiða Evrópusambandsins.

Sex fyrirtæki sektuð vegna nikotínauglýsinga
Neytendastofa hefur sektað sex fyrirtæki fyrir brot gegn auglýsingabanni á nikotínvörum. Fyrirtækin sex eru Djákninn, FVN, Gryfjan, Innflutningur og dreifing, Nicopods og SH Import. Sektirnar eru frá 100 þúsund krónum að 400 þúsund.

Senda tækið til útlanda til skoðunar og vilja endurgreiða Steinunni
Framkvæmdastjóri Elko segir fyrirtækið líta mál þar sem kolsýrutæki sprakk með þeim afleiðingum að neytandi hlaut skaða á hendi alvarlegum augum. Hann segist hafa ítrekað starfsreglur og sent tækið til útlanda í skoðun hjá sérfræðingum.

Gullhúðun gerir óverðtryggð lán með föstum vöxtum dýrari
Gullhúðun, sem átti að verja neytendur, gerir það að verkum að óverðtryggð lán með föstum vöxtum eru dýrari en annars væri, segir framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka. Þegar reglur séu settar þurfi að fylgja þeim vel eftir, horfa á stóru myndina og meta heildaráhrifin til lengri tíma. Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu hafa sagt að fyrirkomulagið smitist yfir í skuldabréfamarkað því bankar geti fyrir vikið ekki fjármagnað sig með löngum sértryggðum skuldabréfum á móti fastvaxtaíbúðalánum.

Þrjú þúsund krónur fyrir ferð í parísarhjólið
Parísarhjólið sem staðir hefur á Miðbakka við Reykjavíkurhöfn í slétta viku hefur vakið nokkra athygli enda sést það víða að. Aðgangseyrir í hjólið er 3000 krónur fyrir staka ferð.

Selja eintómt brauð á 3.190 krónur
Ýmsir ráku upp stór augu í gær og í dag þegar þeir skoðuðu vefsíðu Dominos en þar er ný pítsa á matseðli sem ber heitið „Nakin pizza“. Nýja pítsan er án áleggs, án sósu og án osts. Brauðið kostar 3.190 krónur samkvæmt matseðli.

Sodastream-flaskan sem sprakk í frumeindir sínar
Steinunn Ólafsdóttir framkvæmdastjóri vill vara fólk við Sodastream-tæki sem keypt var í Elko. Hún hefur staðið í bréfaskriftum við fyrirtækið sem segir engin tæki hættulaus. Mestar líkur séu á því að flaskan hafi verið sett skakkt í tækið, eitthvað sem Steinunn kannast ekkert við.

Tæknin tekur yfir leigubílamarkaðinn
Fyrir aðeins ári síðan hófu Hopp leigubílar starfsemi á Íslandi og hafa á þessum stutta tíma orðið áberandi á leigubílamarkaðnum. Með nýjungum og tækniþróun hefur fyrirtækið breytt því hvernig bæði bílstjórar og farþegar nýta sér leigubílaþjónustu.

Fleiri kaupi ódýrar íbúðir án þess að taka lán
Leiguverð hækkaði langt umfram verðbólgu og íbúðaverð síðustu tólf mánuði. Fyrstu kaupendum á íbúðamarkaði fer fækkandi en erfiðara er fyrir þá að koma sér inn á markaðinn en áður.

Meðalheildarlaun 935 þúsund og hæst hjá ríkinu
Grunnlaun á vinnumarkaði hækkuðu um rúm ellefu prósent í síðustu kjarasamningslotu. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar jókst kaupmáttur grunntímakaups um 2,6 prósent.

Mikilvægi Vaxtamálsins -lántakar verjist
Árið 2021 fengu Neytendasamtökin fulltingi VR til að stefna bönkunum vegna skilmála og vaxtaákvarðana lána með breytilegum vöxtum. Að mati samtakanna eru skilmálarnir óskýrir, verulega matskenndir og ógegnsæir og þess vegna ekki hægt að sannreyna hvort vaxtaákvarðanir séu réttmætar.

Tæpar 2500 krónur fyrir litla samloku á Geysi
Meðlimur í Facebook-hópnum Vertu á verði - eftirlit með verðlagi vekur athygli á að samlokur á stærð við rúnstykki á matsölustaðnum við Geysi kosti tæpar 2500 krónur. Eigandi staðarins segir samlokurnar matarmiklar og nýsmurðar með áleggi beint frá býli.

Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl
Þórir Brynjúlfsson varð fyrir miklu óláni fyrir rúmlega ári síðan, þegar hann kom heim til Íslands eftir að hafa lagt bíl sínum á bílastæði ISAVIA á Keflavíkurflugvelli. Snjó hafði verið mokað upp að og undir bílinn, sem fraus og þrýstist upp í undirvagninn. Bíllinn varð fyrir nokkru tjóni, en ISAVIA og verktakinn sem sá um snjómoksturinn neita að borga tjónið.

Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni
Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku af bílastæðum á þremur innanlandsflugvöllum í vikunni, annaðhvort á miðvikudag eða á fimmtudag. Það að Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra hafi ekki skrifað upp á þjónustusamning Svandísar Svavarsdóttur innviðaráðherra og Isavia virðist engu breyta þar um.

Festi fær að kaupa Lyfju
Festi og Samkeppniseftirlitið hafa undirritað sátt vegna kaupa Festi á öllu hlutafé Lyfju hf. Með sáttinni samþykkir Samkeppniseftirlitið samrunann með skilyrðum sem sett eru til að efla og vernda virka samkeppni á þeim mörkuðum sem samruninn hefur áhrif á.

Blár Opal seldist á fimmtán þúsund
Í gær varð uppi fótur og fit á Feisbúkksíðunni Braskogbrall.is, þegar auglýstur var til sölu pakki af Bláum Opal frá árinu 2002. Auglýst verð var fimmtán þúsund krónur.