Hugmyndin hefur lengi verið á lofti að leika deildarleiki á erlendri grundu. Enska úrvalsdeildin, undir forystu Richard Scudamore, reyndi ítrekað á árunum 2008–14 að hrinda í framkvæmd 39. leik tímabilsins, sem hefði farið fram samtímis í fimm mismunandi stórborgum utan Bretlands.
Spænska úrvalsdeildin ætlaði líka að reyna fyrir sér á erlendri grundu árið 2019, þegar leikur Barcelona og Girona átti að fara fram í Miami. Síðan þá hafa úrslitaleikir spænska ofurbikarsins farið fram í Sádi-Arabíu, en sú ákvörðun er til rannsóknar í sambandi við víðamikið mútu- og spillingarmál.
FIFA hefur alla tíð sett sig upp á móti hugmyndinni og sagt þetta skapa ósamræmi í tekjuöflun meðal félaga í sömu deild.
Bandaríkin líklegur áfangastaður
Fréttirnar koma í kjölfar þess að mál Relevant Sports gegn FIFA, vegna Barcelona leiksins sem átti að fara fram í Miami, var fellt niður í síðasta mánuði.
Relevant Sports er skipuleggjandi íþróttaviðburða í Bandaríkjunum og hefur talað fyrir því að knattspyrnuleikir fari fram þarlendis.
Fyrirtækið setti á fót í fyrra International Champions Cup í fyrra, vináttumóts á vesturströnd Bandaríkja sem mörg stórlið Evrópu tóku þátt í. Þá höfðu þeir áður reynt að halda deildarleik í úrvalsdeild Ekvador innan Bandaríkjanna, en FIFA bannaði þeim það.
Nú hefur FIFA ákveðið að opna hug sinn og skipað sérstakan stýrihóp til að rannsaka framkvæmd hugmyndarinnar, en engin ákvörðun hefur verið tekin.
Málið hefur margar hliðar og FIFA sagði öll sjónarmið verða tekin til greina áður en ákvörðun er tekin. Þá verður litið sérstaklega til viðhorfa aðdáenda og hvernig möguleikum til ferðalags á leikinn verður háttað fyrir aðdáendur heimaliðs.