

Hollywood
Fréttir af fræga fólkinu úti í hinum stóra heimi.

Stærstu stjörnur rappsins bera hvor annan þungum sökum
Mikil ólga er nú í rappheimum vestanhafs. Tveir af frægustu röppurum heims, og í raun talsvert fleiri rapparar, elda grátt silfur sín á milli um þessar mundir. Hinn kanadíski Drake og hinn bandaríski Kendrick Lamar bera hvor annan þungum sökum sem varða meðal annars heimilisofbeldi og barnagirnd.

Baulað á Kim Kardashian þegar Brady var grillaður
Áhorfendur bauluðu á áhrifavaldinn og athafnakonuna Kim Kardashian þegar hún tók þátt í að grilla NFL-stjörnuna Tom Brady í gær. Brandari hennar um hæð grínistans Kevin Hart féll í grýttan jarðveg.

Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur
Martin Freeman er hættur að vera grænmetisæta eftir að hafa verið það í 38 ár. Hinn 52 ára gamli leikari varð grænmetisæta sem unglingur árið 1986 vegna þess að honum fannst aldrei þægileg tilhugsun að borða dýr.

Gefi raunsanna mynd af stefnumótahremmingum trans kvenna
„Karlmenn vilja oft stundum bara deita trans konur en ekki sjást með þeim á almannafæri,“ segir Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, talsmanneskja fyrir réttindum trans fólks, í umræðum um Netflix-þættina umtöluðu Baby Reindeer. Hún hefur sjálf átt sína reynslu af eltihrelli.

Potter-stjarna harmar hvernig fór með Rowling
Daniel Radcliffe, stjarna kvikmyndanna um Harry Potter, segir að sér þyki ákaflega dapurlegt hvernig fór fyrir sambandi hans við J.K. Rowling, höfund Potter-bókanna, eftir að hann og fleiri leikarar lýstu sig ósammála henni um trans fólk.

„Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“
Hollywood-leikarinn Kevin Spacey hjólar í bresku sjónvarpsstöðina Channel 4 sem framleiðir um þessar myndir heimildarmynd um ásakanir á hendur honum um kynferðisofbeldi.

Ekki með mönnum á hennar aldri því „þeir eru allir látnir“
Poppstjarnan Cher gerði gys af einkalífi sínu á dögunum. Tónlistarkonan heimsfræga er orðin 77 ára gömul, en hún á í ástarsambandi við tónlistarframleiðandann Alexander „AE“ Edwards, sem er 38 ára. Þau hafa verið saman frá árinu 2022.

Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara
Hollywood-stjarnan Dwayne „The Rock“ Johnson hefur verið sakaður um „króníska óstundvísi“ við tökur á myndinni Red One. Vegna þessa hafi kostnaður myndarinnar aukist um tugi milljóna Bandaríkjadala. Johnson er einnig sagður pissa í vatnsflöskur frekar en að fara á klósettið á setti til að spara tíma.

Atli Örvarsson hlaut BAFTA verðlaunin
Atli Örvarsson vann í gærkvöldi BAFTA-verðlaun fyrir tónlist sína í þáttunum Silo. Verðlaunin voru afhent í London í gær.

Harvey Weinstein lagður inn á spítala
Harvey Weinstein, kynferðisbrotamaður og fyrrverandi kvikmyndaframleiðandi, var í dag lagður inn á spítala í New York til að undirgangast fjölda rannsókna. Lögmaður Weinstein segir heilsu hans vera afar slæma.

Hvetur fólk til að nota sólarvörn eftir krabbameinsgreiningu
Ástralska raunveruleikaþáttastjarnan Harry Jowsey hefur greinst með húðkrabbamein. Hann segist hafa haft skrítin blett á öxlinni í meira en ár áður en hann lét húðlækni skoða blettinn.

Milljónir hafa horft á stikluna fyrir Snertingu
Stikla fyrir kvikmyndina Snertingu var heimsfrumsýnd í vikunni og hafa frá því nærri átta milljónir horft á stikluna, þar af tæpar fimm milljónir á YouTube og rest á samfélagsmiðlunum X, Facebook og Instagram. Þá hefur íslenska útgáfan af stiklunni fengið yfir tvö hundruð þúsund spilanir.

Sophia Bush kemur út úr skápnum
Sophia Bush hefur komið út úr skápnum og staðfest að hún sé í sambandi með Ashlyn Harris, fyrrverandi landsliðskonu í landsliði Bandaríkjanna í fótbolta. Bush segist loksins geta andað og segist finna fyrir miklum létti.

Will Smith hrifinn af akureyrsku hjartaljósunum
Stórleikarinn Will Smith virðist hrifinn af hjartalöguðu umferðarljósunum sem einkenna Akureyri ef marka má myndband sem hann birti á Instagram á mánudaginn.

Dómi Harvey Weinstein snúið við
Áfrýjunardómstóll í New York-ríki hefur snúið við nauðgunardómi kvikmyndaframleiðandans alræmda Harvey Weinstein frá árinu 2020. Hann hafi ekki hlotið réttláta málsmeðferð.

Stefnir Megan Thee Stallion fyrir meint áreiti á vinnustað
Fyrrverandi tökumaður sem starfaði fyrir rapparann Megan Thee Stallion hefur stefnt rapparanum og framleiðslufyrirtæki hennar fyrir meinta áreitni á vinnustað. Þá segir í stefnu hans að hún hafi stuðlað að eitraðri vinnustaðamenningu.

Stjörnum hlaðið partý: Viktoría Beckham á hækjum í fimmtugsafmælinu
Viktoría Beckkham kryddpía með meiru fagnaði fimmtugsafmælinu sínu um helgina. Hún var á hækjum en söngkonan fótbrotnaði í febrúar síðastliðnum. Allar kryddpíurnar mættu í partýið sem svo sannarlega má segja að hafi verið stjörnum hlaðið.

Sló tvö Spotify-met með nýju plötunni
Stórsöngkonan Taylor Swift gaf út plötuna The Tortured Poets Department á föstudaginn. Sama dag hlaut platan flestar hlustanir sem fengist hafa á einum degi á streymisveitunni Spotify auk þess sem söngkonan hlaut flestar hlustanir sem listamaður hefur fengið á einum degi í sögu streymisveitunnar.

Cox segir Phoenix ömurlegan sem Napóleon
Skoski leikarinn Brian Cox gefur lítið fyrir frammistöðu Joaquin Phoenix í kvikmynd Ridley Scott um Napóleon, sem var sýnd á síðasta ári.

Komu saman vegna þrjátíu ára afmælis Pulp Fiction
Það vantaði ekki stórstjörnurnar þegar haldið var upp á að þrjátíu ár væru í ár liðin frá frumsýningu kvikmyndarinnar Pulp Fiction, eða Reyfara eins og myndin var nefnd á íslansku. Margir aðalleikara myndarinnar söfnuðust af því tilefni saman sérstökum viðburði TCM Classic Film Festival í í Chinese Theatre í Los Angeles í gær.

Kom öllum að óvörum með fleiri lögum í nótt
Ellefta og nýjasta plata bandarísku söngkonunnar Taylor Swift kom út í nótt. Öllum að óvörum hefur söngkonan tilkynnt að platan er tvöföld og fimmtán aukalög á plötunni sem enginn bjóst við.

Samantha Davis er látin
Samantha Davis, góðgerðarfrömuður og leikkona er látin. Hún var 53 ára gömul og var eiginkona leikarans Warwick Davis.

Höfundur Kaupalkabókanna með krabbamein í heila
Breski rithöfundurinn Sophie Kinsella, sem þekktust er fyrir Shopaholic-bækur sínar, hefur greinst með skætt krabbamein í heila.

Sofia Vergara með fjallmyndarlegum lækni
Hollywood stjarnan Sofia Vergara hefur opinberað samband sitt á samfélagsmiðlinum Instagram. Þar birtir hún mynd í fyrsta sinn af kærastanum sínum, lækninum Justin Salman en orðrómur hefur verið uppi um samband þeirra í á annað ár.

Keanu Reeves mun leika helsta keppinaut Sonic
Kanadíski leikarinn Keanu Reeves mun fara með hlutverk í þriðju myndinni um tölvuleikjapersónuna Sonic the Hedgehog. Hann mun talsetja einn helsta keppinaut Sonic, sem ber heitið Shadow.

Biðst afsökunar á brösuglegum Coachella-flutningi
Kanadíska tónlistarkonan Grimes bað aðdáendur sína afsökunar eftir að tæknilegir örðugleikar komu upp á tónleikum hennar á tónlistarhátíðinni Coachella í Kaliforníu á laugardag.

Fengið gjöf á hverju ári frá Tom Cruise síðan 2005
Bandaríska leikkonan Dakota Fanning segist hafa fengið afmælisgjöf á hverju einasta ári frá kollega sínum Tom Cruise allt frá því að þau léku saman í kvikmyndinni War of the Worlds árið 2005.

„Farið hefur fé betra“
Caitlyn Jenner, raunveruleikastjarna og fyrrverandi Ólympíufari, brást við fréttum af andláti OJ Simpson með harkalegri samfélagsmiðlafærslu sem hefur vakið misjöfn viðbrögð.

Mónópólý og Sims næst á skjáinn hjá Robbie og félögum
Framleiðslufyrirtækið LuckyChap, sem leikkonan Margot Robbie stofnaði og rekur, hefur hafið framleiðslu á leiknum kvikmyndum byggðum á sígilda borðspilinu Mónópólý og vinsælu tölvuleikjaseríunni Sims.

Mun túlka Springsteen
Bandaríski leikarinn Jeremy Allen White, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt í þáttunum The Bear, mun túlka Bruce Springsteen í væntanlegri kvikmynd um stórsöngvarann.